Senjorita Estella
03.07.2006 17:03:05 / stellais

Jæja...

þá er ég búin að skipta yfir á www.123.is/stellais

Hlakka til að heyra frá ykkur á þeirri síðu

Sjáumst 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 23:18:30 / stellais

ný bloggsíða í vændum

hæ hæ

já.. ég er jafnvel að fara að fara að skipta um bloggstað..... er að prufa og skoða mig áfram á www.123.is/stellais  Svo endilega kíkið þangað og skoðið þá síðu með mér.

kv. Stella


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:54:10 / stellais

ok ahora escribo....

já ... mitt líf einkennist af: 

Mikilli vinnu, æfingum, hópreið,nýrri stöðu í vinnunni, fjallgöngu, tilfærslu á sumarfríinu mínu sem verður til þess að ég fer einungis í 2ja vikna frí (sem færi frekar næs að taka lengra þar sem ég hef ekki farið í sumarfrí síðan sumarið 2004!!!!) og margt flera.......

já byrjum á byrjunni....´

enn er ég að vinna í öllum þessum vinnum mínum og er sko nóg að gera í þeim. Föstudaginn fyrir viku fórum við í deCode saman í hópreið ;)  Það var nú alleg saga til næsta bæjar að segja frá því. Ég hef  nú alltaf sagt að ég og hestar eigum ekki svakalega mikla samleið - sem sannaðist í þessari ferð. Rigningin og rokið voru í essinu sínu og sýndu sínar bestu hliðar í ferðinni!!!!  Ég hef líka alltaf sagt að ég er ekkert sérlega há til lofts og hnakkurinn á hestinum mínum sannaði það!! Ístöðin voru í síðasta gati en samt aðeins of langt fyrir  mig - svo í hvert skipti sem hesturinn hreyfðist hraðar en ekki neitt var ég á ystu nöf að fljúga af!!!!  En ég gat nú nokkurin vegin haldið mér á baki alla hópreiðina með hjartað í buxunum!

Ég er aftur byrjuð hjá Konna í þjálfun - aðeins að slípa mig fyrir sumarið. Mæti 3 í viku. Er með Tinnu vinkonu og Garðari manninum hennar. Svo þreyta er alleg til í mínum líkama eins og stendur á meðan ég er að koma mér af stað. Konni sendi okkur í þrekpróf í byrjun þjálfunarinnar 8|  hehe... einmitt........  ég átti að hlaupa í 12 mín eins langt og ég kæmist á brettinu! OK nota bene...ég get ekki hlaupið á bretti - finnst mér ég alltaf vera að detta og þarf þ.a.l. að halda mér í (sem jú mjög töff!) En þarna gat ég hlaupið1.6km - og var alleg voðalega ánægð með það :D  með bros á vör sagði ég Konna frá niðurstöðunum og hann leit í bókina sína og sagði: "jebb..... þú rétt slapst úr mjög slæmu formi - nú ert þú "bara" í slæmu formi!!!!"  VÁ takk.. hehhe....

Föstudaginn fyrir viku var ég kölluð á "teppið" í vinnunni 8|  Með hjartað í buxunum fór ég og spjallaði við Kristján. Ekki hafði ég gert neitt af mér - heldur var mér boðin ný staða í húsinu :D  24.júlí mun deCode hefja nýja tækni til að skima breytileika í öllu erfðamenginu og var mér boðið að taka þátt í þessu nýja verkefni sem kallast "Illumina". Mér fannst þetta mikill heiður og sagði auðvitað já (eftir reyndar nokkra daga umhugsun). En þetta gerir það að verkum að ég kemst ekki í allt sumarfríið mitt. Get bara tekið 2 vikur og þarf að geyma afganginn þangað til einhverntímann..... ! Ég var farið að hlakka mikið til að komast í frí :S þar sem ég hef ekki farið í frí síðan 2004 (þar sem ég átti bara 1 dag á síðasta ári) En svona er þetta - vinna vinna vinna.... skil ekki afhverju ég er ekki bara ÓGEÐSLEGA RÍK!???

Á föstudaginn var fór hópur frá deCode í fjallgögnu, gengið var Síldarmannagötur sem er liggur frá Skorradal yfir í Hvalfjörð. Jeminn........ ég skil ekki afhverju þarf að hlaupa yfir???? Þegar maður er nú loksins búin að drullast af stað í gönguferð afhverju ekki að njóta þess???????  ég bara spyr....... njóta þess sem við sjáum.... en ekki bara hlaupa yfir líkt og það sé tröll á eftir okkur sem mun taka okkur í gíslingu og geyma okkur helli sínum sem þrælar!!!!!!!!!!  Við lögðum af stað kl. 21:40 og  komum niður kl.02 og í gær gat ég ekki gengið vegna verkja og þreytu! Fór reyndar að þjóna í 190 manna brúðkaupi í rúma 13 tíma, og enda kvöldins var ég hætt að geta hreyft mig vegna þreytu :cry:

En svona er þetta...... alltaf nóg að gera hjá mér líkt og vanalega :!::!: 

Vona að  þið hafið haft það gott og njótið sumarsins :haha:   síja..........


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 10:32:12 / stellais

blogg blogg..

já já ... ég mun blogg mjög bráðlega.... jafnvel í kvöld - hef bara haft miiiiikið að gera... kv. stella

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 15:37:29 / stellais

alltaf að koma betur og betur í ljós....

...hverjir það eru sem virkilega þekkja mig!

Já þetta próf sem ég lagði fyrir mína nánustu ættingja og vini segir mér hverjir það eru sem virkilega veita mér athygli þegar þess gerist þörf hjá mér (sem er öööörsjaldan að ég þurfi að hefja röst mína)  Vil því óska Önnu Margréti (nú allra bestu vinkonu mína!!) og Ragga (allra besta vinar míns í Söddum Möllum) fyrir að fá 100% í prófinu - sannir vinir!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

En annars bara TAKK fyrir að taka þetta próf - mjög gaman.

Annars hefur líf mitt verið nokkuð rólegt. Vann alla helgina og skellti mér í ammæli til Helgu Daggar á laugardagskvöldið og í afganga í gærkvöldi eftir vinnu - mmmmm....... 

Annað kvöld ætla ég að hafa það þrusu gott og horfa á Bubba í TV - afmælistónleikarnir hans, verður örugglega gaman að horfa og hlusta :haha:

Well síja......


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 21:49:11 / stellais

próf í 5 mín!

jebbsí...

jöst for fönn... smelltu hérna http://www02.quizyourfriends.com/linkquiz02.php?quizname=060529174553-906679 

gaman að sjá hversu vel þið þekkið mig =O)


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 17:02:25 / stellais

þá er það hún Silvía okkar Nótt

mikið vorkenndi ég henni í gærkvöldi - ég meina, þó svo að hún hafi verið búin að mála sig út í horn við flesta þarna, þá finnst mér samt dónalegt að púa á þau áður en þau byrjuðu atriðið sitt :cry:  Þau stóðu sig samt sæmilega miðað við aðstæður :| 

En ég verð að segja eitt... gellan frá Ukraínu (hermaðurinn) var alveg eins og Leonsí (indverska prinsessan okkar) þegar hún var að syngja!  Takið eftir þessu á morgun! Bara fyndið :haha: :haha: :haha: :haha:

Annars ætla ég sko að djamma og skemmta mér vel annað kvöld - dett´íða og fá mér að r***  8)8)  thí hí....

Svo auðvitað langar mig til að óska  henni Beggu frænku til hamingju með þrítugsafmælið sitt :D:D:D


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 09:47:42 / stellais

ammæli ammæli ammæli !!

Jebb...vil bara óska henni Önnu Elínu til hamingju með daginn í dag =O) hafðu það sem allra best í dag!!

Svo vil ég bara segja að ég á núna mest bestasta bíl í heimi - ógesslea gott að keyra hann =O)  svo er ég bara svo mikil pæja þegar ég er að keyr'ann - sonna ekta pæjubíll =O)

well síja


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 07:53:31 / stellais

ammæli ammæli....

Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn =O)   hafðu það sem allra best í dag og góða skemmtun í kvöld :D

svo vil ég líka óska henni Söndru minni til hamingju með 3ja ára afmælið sitt ... 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 19:00:32 / stellais

eðalvagninn smái..

   

Svona lítur eðalvagninn út sem ætti að koma í hádeginu á miðvikudag....


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 10:27:05 / stellais

ómægat..

...þetta er allt að gerast =O) 

keypti mér bíl í dag .... Yaris árg. 2003, silfurgrár - með spojler og alles.. ógesslea hlottur .... Ég bara vona að hann komi til mín í dag  - hann er nebblea á Akureyri - svo nú liggja allir sveittir fyrir norðan hjá Toyota að finna einhvern til að koma kagganum í menninguna.

jjjiiiiibbíííí..... =O)


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 16:15:39 / stellais

við erum fegurðardrottningar... og brosum í gegnum tárin...

Alþjóðleg kattafegurðarsamkeppni stendur yfir í dag í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu

...OG HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ VIÐ VORUM EKKI LÁTNAR VITA AF ÞESSU!???

jæja....þeirra missir í Búkarest.... hefðum sko rúllað þessu upp!!!!  

  

kv. Regína og Sandra gellur !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 22:24:21 / stellais

doj doj...

mbl.:

Fjögurra ára gamall drengur hefur verið nefndur maraþondrengurinn á Indlandi, en hann hljóp í morgun 65 kílómetra vegalengd í fylgd 300 indverskra hermanna....................

......OG......SÓÓ???????

sko...ef ég einhverntíman mun fjölga mér (gvöð hjálpi þá leikskólakennurunum!)  þá eru alleg 120% líkur á því að börnin mín munu erfa íþróttaDNAið mitt og verður svona "skokk" bara daglegur viðburður á mínu heimili 8)8)

....einmitt!!!!!

Annars vil ég bara segja ykkur það að ég fór á alleg magnaða tónleika hjá honum Garðari á laugardaginn - fékk alleg gæsahúð og alles þegar hann var að syngja!  BARA flottur :haha:   Ætla sko aftur fljótt að hlusta á hann.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 14:07:11 / stellais

þrifmorguninn mikli

já.... obb bobb bobb.... vaknaði allt of snemma í morgun, en reyndi að liggja eins  lengi og ég gat... s.s. til kl.9 þá gat ég ekki meir 8|  

Svo þá var bara að fara fram úr, borða, setja Bubba í gang í iPod-inum, henda í þvottavélar, ná í ryksuguna, skúringargræjurnar og hefjast handa.  Já þetta var hinn mikli þrifmorgun!  Og nú er öllu lokið - mikið er þetta þægilegt þegar þessu er lokið, en assgoti er þetta leiðinlegt :|   Þegar ég verð rík (sem bara réééétt handan hornsins!!) þá ætla ég að fá mér einhvern til að gera þetta - kannski AuPair - því þá get ég farið hand-og fótsnyrtingu þegar mig langar, farið í leikfimi, klippingu, kíkt í búðir og heimsókt alla ríku vinina mína sem eru líka heima yfir daginn - því mennirnir okkar eru að vinna og við bara að dundast allan daginn!!!!  ljómandi 8)

jæja..best að hendast í glansandi sturtuna mína =O)  því svo liggur leiðin til pabba, hann er nebblea að fara til Grænlands í 2 mán. á mánudaginn :|  svo ég ætla að fara og kveðja hann .....  Og svo öddað eru tónleikarnir í kvöld - jjjiiiiibbbbbíííííííííí

síja......


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 09:33:47 / stellais

jæja...

... hvað er títt!???  alltaf nóg að gera hér.

Var að þjóna í 300 manna kokteilboði í gær (komu reyndar ekki alleg sonna margir - en það var búið að bjóða 600 manns, svo þau máttu eiga von á ca. 300)   Gekk um með Shusi bakk í 3 tíma og í dag er ég AÐ DREPAST úr harðsperrum í upphandleggjunum :(   Líkt og ég hafi verið á geggjaðri lyftingaæfinum!!!   Fékk mér svo Shusi að borða eftir á - mjög fínt og gott !!!!  (men.... ég er að verða svo menningarleg í matnum!)

Annað kvöld er ég svo að fara með Ástu á tónleika - ætlum á Garðar Cortes í Laugardalshöllinni - hlakka þokkalega til og verður örugglega ferlega flott :haha:

jæja sjáumst!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18